Kvöldið hefur flogið alltof fljótt Fyrir utan gluggann komin nótt Kertin er' að brenna upp Glösin orðin miklu meir'en tóm Augnalokin eru eins og blý En enginn þykist skilja neitt í því Að timinn pípuhatt sinn tók Er píanistinn sló sin lokahljó Við hverfum hægt og hljótt Út í hlýja nóttina Hægt og hljótt Göngum við heim götuna Einu sinni, einu sinni enn
Eftir standa stólar, bekkir, borð Brotin glös, sögð og ósögð orð Þögnin fær nú loks sinn frið Fuglar yrka nýjum degi ljóð Við hverfum hægt og hljótt Út í hlýja nóttina Hægt og hljótt Göngum við heim götuna Hægt og hljótt Göngum við heim götuna Hægt og hljótt Út í hlýja nóttina Einu sinni, einu sinni enn