Oftast finn ég ljúfan frið
Fylla innra innvolsið
Hugur minn er hljóðlátt svið
Sem hugljúft vinnur inn á við
Allt sem gerist samþykkt er
það innri veruleikann ver
Frá ógnar sterkri kvöð sem sker
í sálarbergið grimmt sem her
Ekkert varir endalaust
Ekki farið sem þú hlaust
þennan hjara heims þú kaust
Hann mun fjara út sem haust
Hjartað semur lífsins ljóð
Ljúft það temur okkar blóð
Glaðlegt lemur ástar óð
úr því kemur friðar hljóð